Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 21. ágúst 2026

Stýrivaxtahækkun Seðlabankans í vikunni eru forsætisráðherra vonbrigði. Hún segir hækkanir á opinberum gjöldum hafi ekki verið meiri en undanfarin ár.

Noregur, Bretland og Kanada eru meðal ríkja sem fordæma ísraelsk stjórnvöld fyrir nýja landtökubyggð sem klýfur Vesturbakkann. Önnur landtökubyggð, sem var lokað fyrir 20 árum, hefur verið opnuð aftur.

Íslensk stjórnvöld taka undir yfirlýsingu ríkjanna og utanríkisráðherra

Vinnuveitandi brotaþola í Reykholtsmálinu segir grunsemdir strax hafa vaknað þegar maðurinn mætti ekki til vinnu. Hann hafi verið fyrirmyndarstarfsmaður.

Vopnabúr sem talið er vera á vegum rússnesku leyniþjónustunnar fannst í skógi í Þýskalandi. Leyniþjónusta landsins segir hættu á rússneskum skemmdarverkum þar í landi hafa aukist síðustu misseri.

Erlendir sérfræðingar meta hvort hægt upp jarðneskum leifum manns sem lést í vinnuslysi í Grindavík í janúar 2024. Lögreglustjórinn á Suðurnesjum vinnur áhættumati.

Starfsemi lögreglunnar á Þórshöfn er ekki svipur hjá sjón eftir lögreglustöðinni var lokað vegna myglu. Byggðarráð Langanesbyggðar hefur óskað eftir fundi með lögreglustjóra um framtíð löggæslu.

Elsta mannsekja í heimi, svo vitað sé, á afmæli í dag. Enska konan, Ethel Caterham er orðin 117 ára.

Birt

21. ágúst 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,