Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 1. september 2026

Tímabundin lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti féll úr gildi á miðnætti. Forstjóri Samkeppniseftirlitisins segir stofnunin hafi auga með því þróun álagningar eldsneytisfyrirtækjanna.

Forstöðukona félagsmiðstöðvar í Reykjavík óttast hætta geta starfað á gólfinu, með börnum og ungmennum, vegna skipulagsbreytinga Reykjavíkurborgar. Starfsfólk félagsmiðstöðva mótmælti við ráðhúsið í morgun.

Hákon áttundi sór í morgun eið sem Noregskonungur. Mette-Marit, eiginkona hans og drottning var ekki viðstödd vegna fylgikvilla eftir lungnaígræðslu í júní.

Það hægist á vinnumarkaði og verður erfiðara fyrir atvinnulausa finna sér vinnu, segir lektor í hagfræði. Hægfara kólnun hagkerfisins heldur áfram.

Bílaleigur sjá í auknum mæli um innheimtu fyrir ríkissjóð, segir forstjóri Bílaleigu Akureyrar. Gjaldtaka við brúna yfir Hornafjarðarfljót hófst í dag.

Bandarískt olíufyrirtæki tekur yfir 17 olíuvinnslusvæði í Venesúela samkvæmt olíusamningi sem Bandaríkin og Venesúela gerðu nýverið.

Bændur í Danmörku komu saman til mótmæla við þing landsins í morgun. Þeir mótmæla frumvarpi um áburðarlög, margir óku dráttarvélum um höfuðborgina.

Fyrrverandi félagi í gengi í Los Angeles, var í gær dæmdur fyrir myrða rapparann Tupac Shakur. Hann á yfir höfði sér lífstíðardóm en fangelsisdómur yfir honum verður kveðinn upp í næsta mánuði.

Stuðningsmenn Víkings máluðu slagorðið: Aðeins eitt stórveldi á stúkuna á Meistaravöllum, heimavelli KR-inga, í nótt. Liðin mætast í toppslag í Bestu deild karla í fótbolta í kvöld.

Birt

1. sept. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,