Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 8. apríl 2026

Vilhjálmur Bjarnason fyrrverandi alþingismaður og Ólafur Kristinsson lögmaður krefjast milljóna miskabóta af Björgólfi Thor Björgólfssyni kaupsýslumanni og Birgi Ragnarssyni fjárfesti vegna njósna eftirlitsfyrirtækisins PPP. Vilhjálmur segir njósnirnar hafa haft margvísleg áhrif á sig.

Bandaríkin og Íran sömdu um tveggja vikna vopnahlé í gærkvöld rétt áður en frestur sem Bandaríkjaforseti, gaf Írönum til semja rann út. Bæði ríkin lýsa yfir sigri.

Ótalmörg vot snjóflóð hafa fallið undanfarinn sólarhring. Leysingar og vatnavextir gætu orðið til vandræða næstu daga.

Tveir voru fluttir á bráðamóttöku eftir eldur kviknaði í bílskúr í Kópavogi í nótt.

Ungmenni kynnast vinnu á vettvangi umferðarslysa á forvarnardegi ungra ökumanna

Fjármálaráðherra skilur óánægju með framkvæmd kílómetragjalds en það ekki nýr skattur. Hátt í 41 þúsund hefur sett nafn sitt á undirskriftalista um afnám gjaldsins.

Geimfari í Artemisar-leiðangrinum líkir yfirborði tunglsins við hálendi Íslands. Geimfararnir æfðu sig á Íslandi.

Íslenska kvennalandsliðið í handbolta mætir Færeyjum ytra í dag. Sigur er afar mikilvægur , ætli íslenska liðið sér á annað Evrópumótið í röð.

Birt

8. apríl 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,