Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 23. júní 2025

Allir fimm sakborningar í Þorlákshafnarmálinu neituðu sök þegar málið var þingfest í Héraðsdómi Suðurlands í morgun. Þrír eru ákærðir fyrir manndráp, frelsissviptingu og fjárkúgun.

Höfuðborg Írans nötraði í öflugum loftárásum Ísraelshers í morgun og þúsundir eru án rafmagns í Ísrael eftir árásir Íranshers.

Átökin í Mið-Austurlöndum verða rædd á leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins í vikunni. Leiðtogar Evrópusambandins hvetja Írana til setjast samningaborðinu og vara þá við hefndaraðgerðum.

Tekin verður skýrsla af 45 manns á næstu dögum í tengslum rannsókn lögreglu á hvarfi Jóns Þrastar Jónssonar. Fimm írskir lögregluþjónar eru komnir til Íslands.

Tæp fjörutíu prósent sjávarútvegsfyrirtækja búast við fækka starfsmönnum á næstu sex mánuðum, samkvæmt nýrri könnun Samtaka atvinnulífsins og Seðlabankans. Framkvæmdastjóri SA segir fyrirtækin kalla eftir því stjórnvöld endurmeti áhrif af hækkun veiðigjalda. Virkur tekjuskattur á sjávarútvegafyrirtæki stefni í vera hátt í 80%.

Minni strandveiðiafli er kominn á land en á sama tíma í fyrra þrátt fyrir fjölgun báta. Smábátaeigendur segja þetta sýna þörfin fyrir viðbótarkvóta vegna 48 strandveiðidaga er ekki eins mikil og sumir töldu.

Oklahoma City Thunder varð NBA-meistari í körfubolta í nótt. Þetta er fyrsti titill liðsins undir nýju nafni.

Frumflutt

23. júní 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Hádegisfréttir

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,