Gærdagurinn var sorgardagur í sögu Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna, sagði sendiherra Palestínu, eftir að Bandaríkin beittu neitunarvaldi gegn ályktun um tafarlaust vopnahlé á Gaza.
Dómsmálaráðherra segir að engin ákvörðun hafi verið tekin um hvort vísa eigi tveimur palestínskum drengjum til Grikklands. Þeim hefur verið neitað um vernd hér á landi. Fósturmóðir annars þeirra segir biðina eftir svörum erfiða og óvissuna óbærilega.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu lítur það alvarlegum augum að starfskonur lögreglunnar hafi pantað karlkyns fatafellu í fræðsluferð, sem var meðal annars farin til Auschwitz í Póllandi. Þar sóttu lögreglumenn námskeið um hatursglæpi og uppgang öfgaafla.
Forstjóri Menntamálastofnunar segir að menntakerfið vanti gögn. Ekki er vitað hvernig þeim sem standa sig illa í PISA-könnuninni reiðir af til framtíðar.
Aðildarþjóðir Evrópusambandsins komust í gær að samkomulagi um drög að lögum um gervigreind eftir alls um þrjátíu og sex klukkustunda viðræður síðustu daga.
Skíðasvæðið í Bláfjöllum er gengið í endurnýjun lífdaga með nýjum lyftum og tækjum til að framleiða snjó. Formlegri opnun er fagnað í dag, þótt enn sé ekki kominn nægur snjór til að hleypa skíðafólki í brekkurnar.
Sundmaðurinn Anton Sveinn McKee keppir til úrslita á Evrópumótinu í 25 metra laug í dag.