Rússnesk freigáta skaut blysum í átt að danskri herþyrlu í gær. Þyrlan var við eftirlit á alþjóðlegu hafsvæði milli Danmerkur og Þýskalands. Í nótt skutu herdeildir NATO niður dróna í litáískri lofthelgi.
Icelandair og Félag íslenskra atvinnuflugmanna náðu ekki að ljúka kjarasamningsviðræðum fyrir daginn í dag eins og stefnt var að. Ríkissáttasemjari kveðst þó bjartsýnn.
Illa gekk að finna eldsupptök í Toppstöðinni í Elliðaárdal í gær vegna mikils reyks. Slökkvistarf gekk þó vel og áætlanir um starfsemi í húsinu haldast óbreyttar.
Breiðafjarðarferjan Baldur fer í fjögurra til sex vikna slipp í október. Engar siglingar verða milli Stykkishólms og Brjánslækjar á meðan, en farþegaskipið Ingólfur siglir til Flateyjar.
Þrír starfsmenn á meðferðarheimilinu Vogi eru komnir í veikindaleyfi eftir að aðalstjórn SÁÁ lýsti í gær stuðningi við framkvæmdastjórn samtakanna. Á sjöunda tug starfsmanna höfðu áður lýst vantrausti á framkvæmdastjórnina.
Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun leggur til að hluti þess fjár sem nú fer í húsnæðisbætur verði nýttur til að fjármagna íbúðauppbyggingu. Þetta telur stofnunin geta lækkað leiguverð.
Nemendur við Háskólann í Reykjavík syntu í skólann í morgun. Rektor og aðstoðarrektor skólans fylgdu þeim á kajak. Uppákoman var lokahnykkur góðgerðarviku skólans þar sem rúmlega ein milljón króna safnaðist fyrir Píeta-samtökin.