Gríðarmikil skjálftavirkni er enn við Grindavík. Veðurstofan telur verulegar líkur á eldgosi á næstunni. Ellefu skjálftar yfir þremur að stærð hafa mælst frá því klukkan sex í morgun. Merki eru um að kvikugangurinn hafi lengst enn frekar. Kvika liggur undir Grindavíkurbæ, frá Sundhnúkum og þaðan í suðvestur undir sjó. Kvikugangurinn er um tólf kílómetra langur. Brjóti kvikan sér leið í gegnum grunnsævi úti fyrir Grindavík verður öskugos, segir Þorvaldur Þórðarson, prófessor í eldfjallafræði.
Grindavíkurbær var rýmdur í gærkvöldi. Öllum íbúum, og viðbragðsaðilum, var gert að yfirgefa bæinn. Rýmingin gekk vel. Hundrað gistu fjöldahjálparstöðvar í nótt. Flestir fengu inni hjá vinum og ættingjum.
Víðir Reynisson sviðstjóri almannavarna segir íbúum að búa sig undir að ástandið muni vara í talsverðan tíma.
Eldur kviknaði í framhaldi af snörpum jarðskjálftum í húsnæði HS Orku í Svartsengi í gærkvöldi. Rafmagni sló út í Grindavík í morgun.
Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, segist þakklátur fyrir skjót viðbrögð vegna hamfaranna suður með sjó og að ekki hafi orðið manntjón. Nú verði Íslendingar að standa saman og sýna hvað í þeim býr.
Þrjátíu og níu börn á Shifa-sjúkrahúsinu á Gaza eru í lífshættu eftir að rafmagn fór alveg af. Þetta fullyrða heilbrigðisyfirvöld á Gaza.