Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 14. janúar 2025

Fjölgað verður í herliði Dana á Grænlandi á næstunni, segir varnarmálaráðherra Danmerkur. Utanríkisráðherrar Danmerkur og Grænlands hitta varaforseta og utanríkisráðherra Bandaríkjanna í Washington í dag á fundi þar sem mikið er talið í húfi.

Íranar eru tilbúnir gera árásir á herstöðvar Bandaríkjanna í nágrannalöndum sínum ef Bandaríkin skerast í leikinn í blóðugum mótmælum sem geisa í Íran. Mannréttindasamtök segja á þriðja þúsund hafi verið drepnir í mótmælunum.

Niðurstöður Gerðardóms í kjaradeilu flugumferðarstjóra eru súrsætar segir formaður flugumferðarstjóra.

Dósent við kennaradeild Háskólans á Akureyri gagnrýnir orð Ingu Sæland, nýs mennta- og barnamálaráðherra, um lestrarkennslu barna; ráðherra skorti læsi á málefni ráðuneytisins.

Bið eftir augasteinaaðgerð hefur lengst töluvert síðustu ár; á fjórða þúsund hefur beðið í meira en ár.

Ásgeir Jónsson hefur bæst í hóp seðlabankastjóra sem heita stuðningi við bandaríska seðlabankastjórann.

Enginn hefur enn boðið sig fram til formennsku í Framsóknarflokknum. Kjósa nýjan formann eftir mánuð.

Tveimur talmeinafræðingum á Reykjalundi hefur verið sagt upp. Þjónustunni verður útvistað í hagræðingarskyni.

90 prósent landsmanna voru ánægð með Áramótaskaupið. Það er mesta ánægja síðan Maskína hóf mælingar á viðhorfi til Skaupsins.

Júlía Sylvía Gunnarsdóttir og Manuel Piazza keppa í dag á EM í listdansi á skautum. Þetta er í annað sinn sem parið keppir á Evrópumóti.

Frumflutt

14. jan. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,