Enn er óljóst hvort Bandaríkin og Íran undirriti friðarsamning í dag líkt og Bandaríkjaforseti hafði boðað. Sendinefnd frá Katar er mætt til Írans til að aðstoða við að ljúka samningum.
Stjórnmálafræðingur telur undirliggjandi ólgu í Samfylkingunni benda til þess að óánægja sé með fleira en bara útlendingamál innan flokksins. Stefnu flokksins hafi verið breytt mikið án umræðu eða formlegra ferla.
Öflug jarðskjálftahrina varð í Bárðarbungu í gær og í nótt. Jarðeðlisfræðingur líkir öskju Bárðarbungu við glas sem er orðið hálffullt, og því sé ólíklegt að fari að gjósa þar í bráð. Náttúran eigi það þó til að koma á óvart.
Svisslendingar höfnuðu naumlega tillögu Svissneska þjóðarflokksins um að setja þak á íbúafjölda landsins, samkvæmt útgönguspám. Þjóðaratkvæðagreiðslu um þessa tillögu lauk í dag.
Sveitarstjórn Árborgar hefur ákveðið að halda aftur af gjaldskrárhækkunum sem lið í baráttunni við verðbólgu.
Þjóðaröryggisráðuneyti Kína heldur því fram að erlend ríki noti njósnaskjaldbökur og njósnafiska til að safna viðkvæmum gögnum um sjávarumhverfi á kínversku hafsvæði.