Mikilvægt er að grípa til aðgerða gegn skipulagðri brotastarfsemi á vinnumarkaði, segir félags- og húsnæðismálaráðherra. Stjórnvöld hafa birt aðgerðaáætlun í þrettán liðum.
Ísraelar gera áfram þungar árásir á Teheran og Beirút og hermönnum á landi hefur verið skipað yfir landamærin að Líbanon. Íran heldur hefndarárásum áfram, meðal annars á Persaflóaríki, þar sem mörg þúsund flugfarþegar eru strand.
Íslendingar eru ekki þátttakendur í boðaðri kjarnorkufælingaráætlun Frakklandsstjórnar, en það er ekki óeðlilegt að Evrópa treysti sínar varnir segir utanríkisráðherra.
Stuðningur við ríkisstjórnina minnkar í nýjasta þjóðarpúlsi Gallups. Samfylkingin og Miðflokkurinn eru einu flokkarnir sem myndu bæta við sig þingsætum frá kosningunum.
Rafmagn fór af á Borgarfirði eystra í fárviðri sem gekk yfir Austurland í gær og í ofanálag bilaði varaafl. Yfir 50 metrar á sekúndu mældust á vindmæli í þorpinu - viðgerðarmaður skreið á milli húsa til að koma rafmagni á aftur.
Gul veðurviðvörun er í gildi á Suðurlandi og við Faxaflóa vegna suðaustanhríðar - snjókomu og skafrennings, samgöngur gætu raskast.
Einhverfir rekast víða á veggi, til dæmis í geðheilbrigðiskerfinu, þrátt fyrir að þörfin fyrir þjónustu sé mikil.
Atvinnuvegaráðherra segir að kvótasetning á grásleppu hafi verið afturkölluð svo fleiri hafi leyfi til að veiða. Það skipti máli að kvótasetningin hafi verið umdeild, ekki sé byrjað að framselja réttindin og Hafrannsóknastofnun hafi ekki áhyggjur af ofveiði
Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta mætir Spáni klukkan sex. Leikurinn markar upphaf undankeppni HM 2027. Spánverjar eru einmitt ríkjandi heimsmeistarar.