Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 24. júní 2025

Vopnahlé milli Ísraels og Írans sem tilkynnt var um í morgun virðist þegar farið út um þúfur. Bandaríkjaforseti varar ísraelsk stjórnvöld við ráðast á Íran.

Árlegur leiðtogafundur Atlantshafsbandalagsins hefst í Hollandi dag. Viðamikil áætlun um aukin útgjöld til varnarmála liggur fyrir fundinum.

Samtal um afgreiðslu mála og þinglok getur ekki haldið áfram nema forsætisráðherra dragi orð sín í Kastljósi í gær til baka eða leiðrétti, segir þingflokksformaður Sjálfstæðisflokks.

Umhverfisráðherra segir til skoðunar veita eftirlitsstofnunum heimild til sekta verslanir fyrir selja vörur sem innihalda skaðleg efni.

Mjófirðingar telja laxeldi helsta tækifærið til skapa atvinnu og fjölga fólki í firðinum og gagnrýna eldisleyfi hafi enn ekki verið boðin út, fimm árum eftir slíkt var heimilt. Bæjarráð Fjarðabyggðar vill stjórnvöld rjúfi kyrrstöðuna.

Fyrstu makrílfarmarnir eru komnir á land á þessari vertíð en veiðin hófst í síðustu viku. Það tekur um einn og hálfan sólarhring sigla á miðin en öll veiðin er í Smugunni.

Evrópubikarmót í frjálsíþróttum hefst í dag í Maribor í Slóveníu, Ísland á 33 keppendur og gæti komist upp í aðra deild.

Frumflutt

24. júní 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Hádegisfréttir

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,