Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 29. nóvember 2025

Rússar gerðu í nótt stærstu árás á Kyiv, höfuðborg Úkraínu, í rúman mánuð. Ráðist var á orkuinnviði og stór hluti borgarbúa er án rafmagns eftir nóttina. Sendinefnd Úkraínu er á leið til Bandaríkjanna til ræða friðartillögur.

Hugbúnaðargalli sem hefur uppgötvast í þotum Airbus nær ekki til flugvéla í eigu Icelandair, sem þurfti þó aflýsa einni ferð í morgun á meðan málið var kannað.

Íbúar í frístundabyggð í Grímsnes- og Grafningshreppi sitja ekki hjá og þegar þegar sveitarstjórn hyggst setja öll skipulagsmál frístundabyggðar á bið, segir einn íbúanna.

Hlé hefur verið gert á afgreiðslu allra hælisumsókna í Bandaríkjunum. Ákvörðunin er tekin vegna banvænnar skotárásar sem gerð var í Washington á miðvikudag.

Veðurstofan hefur gefið út gular viðvaranir vegna talsverðrar snjókomu og takmarkaðs skyggnis á Suðvesturhorninu í dag og í fram á kvöld. Búast við samgönguröskunum , enda gæti ofankoma numið allt 20-30 sentimetrum.

Logi Einarsson staðgengill umhverfisráðherra hefur ákveðið færa Hamarsvirkjun á Austfjörðum úr verndarflokki í biðflokk. Hann segir raforkuöryggi á svæðinu lítið, skortur á raforku þar og fyrirhuguð virkjun standi utan við hamfarasvæði.

Skissa eftir ítalska endurreisnarmálarann Michelangelo sem hann gerði fyrir veggmynd í lofti sixtínsku kapellunnar verður boðin upp hjá Christies í febrúar. Myndin rataði óvænt inn á borð uppboðshússins.

Frumflutt

29. nóv. 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Hádegisfréttir

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,