Rússlandsher gerði víðtækar árásir á Úkraínu í nótt, aðra nóttina í röð. Þögn Bandaríkjanna yfir grimmdarverkum Rússa er Pútín hvatning, að mati Úkraínuforseta.
Dómsmálaráðherra segir lykilatriði í landamæraeftirliti að flugfélög afhendi farþegalista og furðar sig á að Miðflokkurinn styðji ekki frumvarp um aukið landamæraeftirlit.
Framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda segir olíuverðlækkun á heimsmarkaði skila sér seint og illa og fákeppni einkenni markaðinn á Íslandi. Seðlabankastjóri telur allar forsendur fyrir verðlækkunum.
Skógræktarfélag Reykjavíkur telur vel hægt að fara aðrar leiðir við vatnsvernd í Heiðmörk heldur að banna bílaumferð og loka stór svæði alveg af.
Umhverfis- og orkustofnun mun á næstunni taka í notkun sérstaka byssu sem skimar fyrir skaðlegum efnum í vörum sem keyptar eru í gegnum alþjóðleg netmarkaðstorg.
Framkvæmdir við nýjan byggðakjarna í Fljótsdal hefjast í sumar. Minjastofnun taldi að fornminjar gætu verið í hættu og lagði til að könnunarskurðir yrðu grafnir en sveitarstjórinn segir að einfaldari lausn hafi fundist.