Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 30.maí 2025

Leit sundmanni, sem talið er hafi örmagnast úti fyrir Örfirisey við Reykjavík í gær, hefst nýju klukkan tvö. Gert er ráð fyrir hátt í tvö hundruð manns leiti hans.

Hamas-samtökin hafa ekki svarað tillögu Bandaríkjanna um vopnahlé á Gaza, sem ísraelsk stjórnvöld samþykktu í gær. Í morgun var aftur skotið á fólk sem reyndi sækja sér mataraðstoð.

Fimm flugumferðarstjórum hjá dótturfélagi Isavia hefur verið sagt upp fyrir skrá á sig fleiri tíma en þeir unnu. Það varð til þess þeir höfðu ekki gilt leyfi til stjórna flugumferð.

Ekki verða gerðar breytingar á því hve mikið veiða daglega á yfirstandandi strandveiðitímabili, samkvæmt upplýsingum frá atvinnuvegaráðuneytinu. Í haust verður skoðað hvort gera þurfi breytingar á því hvað mikið er heimilt veiða í hverri ferð.

Þingeyjarsveit hyggst loka leikskólanum á Laugum í Reykjadal. Foreldrar mótmæla og óttast fjölskyldufólk flytji burt.

Kartöfluhnúðormur hefur í fyrsta sinn greinst í kartöflugörðum í Þykkvabæ. Ormurinn, sem leggst á ræturnar á kartöflunum, getur rýrt uppskeru bænda en hann er ekki hættulegur mannfólki.

Til stendur finna nýjan stað fyrir hjólhýsabyggðina á Sævarhöfða í Reykjavík. Formaður Samtaka hjólabúa segir íbúa langþreytta á bágri aðstöðu.

Ísland mætir Noregi í Þjóðadeild kvenna í fótbolta í kvöld. Fyrirliði Íslands segir þær ætli hirða öll stigin.

Frumflutt

30. maí 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Hádegisfréttir

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,