Flóðbylgjuviðvörun er í gildi í Japan þar sem stór skjálfti reið yfir í dag. Hús hafa hrunið og tugþúsundir eru án rafmagns.
Nýársnótt gekk að mestu leyti vel fyrir sig. Mikið var um skemmtanahald en fáir gistu í fangaklefa . Sumarbústaður brann til kaldra kola í Grímsnesi í gærkvöld og fyrsti bruni ársins varð rétt eftir miðnætti í skúr við íbúðarhús í Hafnarfirði.
Talsverð mengun var á höfuðborgarsvæðinu þegar nýtt ár gekk í garð en þó ekki metmengun. Mengunina má rekja til veðurskilyrða, segir sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun.
Manntjón varð í loftárásum á Úkraínu í nótt. Úkraínuforseti hét því í nýársávarpi að Rússar fengju að finna fyrir reiði Úkraínumanna á nýju ári.
Margrét Þórhildur Danadrottning hefur ákveðið að afsala sér dönsku krúnunni. Hún eftirlætur Friðriki syni sínum krúnuna fjórtánda janúar eftir 52 ár á valdastóli.
Ófriður í heiminum og minnkandi traust almennings til Þjóðkirkjunnar var meðal umtalsefna Biskups í hennar síðustu nýárspredikun.