Oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík hittir í dag oddvita þeirra framboða sem fengu kjörna fulltrúa í borgarstjórnarkosningunum. Lítið er látið upp hvernig gengur að mynda meirihluta.
Skemmtiferðaskipið Hondius, þar sem hantaveirusmit greindist fyrr í mánuðinum, kom til Rotterdam í morgun. Farþegi greindist með smit um helgina.
Orðalagi spurningar í þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður að ESB verður breytt. Málið var afgreitt úr utanríkismálanefnd í morgun - . stjórnarandsstaðan segir það ekki hafa verið tímabært.
Loftslagsbreytingar ætti að skilgreina sem neyðarástand í lýðheilsu að mati Evrópunefndar um loftslag. Formaðurinn, Katrín Jakobsdóttir, segir ógnina ekki hafa farið neitt þó að athygli margra beinist annað.
Björgunarskip voru kölluð út vegna fiskibáta í vanda á Breiðafirði í nótt og Húnaflóa snemma í morgun.
Maður var fluttur á sjúkrahús með töluverð brunasár eftir að hafa kveikt í sér í morgun. Lögregla hafði reynt að yfirbuga hann með rafbyssu.
Blíðskaparveður er víðast hvar í dag og útlit fyrir áframhaldandi hlýindi. Hitinn gæti farið í 18 stig norðanlands um helgina.
Njarðvík er Íslandsmeistari kvenna í körfubolta eftir stórsigur á Haukum í gærkvöld,.