Mótmælendur eru enn í möstrum tveggja hvalveiðiskipa í Reykjavíkurhöfn. Aðstoðarlögreglustjóri segir að mótmælin brjóti í bága við hegningarlög og að fólkið stefni eigin heilsu í hættu. Stuðningsmenn mótmælanna gagnrýna vinnubrögð lögreglu.
Leiðtogi Norður-Kóreu fer til fundar við Rússlandsforseta á næstunni að ræða vopnasölu. Þetta fullyrða bandarískir fjölmiðlar og bandarísk stjórnvöld hóta refsiaðgerðum.
Umferð er að komast í eðlilegt horf á Reykjanesbraut eftir að vöruflutningabíll valt þar í nótt.
Ágreiningur menntskælinga á Akureyri og bílstjóra rútufyrirtækis náði hámarki þegar rútubílstjóri hleypti úr dekkjum á bíl nemanda. Skólameistari Menntaskólans á Akureyri segir viðhorf sumra fullorðinna gagnvart ungu fólki sorgleg.
Stjórnarflokkarnir stokka upp formennsku í þingnefndum þegar Alþingi verður sett í næstu viku. Sjálfstæðisflokkur fær formennsku í utanríkismálanefnd og Framsókn tekur við fjárlaganefnd af Vinstri grænum sem fá formennsku í umhverfis- og samgöngunefnd og velferðarnefnd.
Styttan af Héðni Valdimarssyni er komin aftur á stall sinn við Hringbraut í Reykjavík eftir fimm ára fjarveru. Styttan var í viðgerð og talsmaður eigenda hennar segir ánægjulegt að endurheimta Héðinn.
Serbar urðu í morgun fyrsta þjóðin til að tryggja sér sæti í undanúrslitum HM karla í körfubolta á Filipseyjum með öruggum sigri á Litáum.