Efla á landamæragæslu, beita endurkomubanni oftar og senda skýr skilaboð um að Ísland sé ekki vænlegur áfangastaður fyrir glæpahópa. Þetta kemur fram í fyrstu stefnu sem gefin hefur verið út um aðgerðir gegn skipulagðri brotastarfsemi. Dómsmálaráðherra boðar öruggara Ísland.
Forsætisráðherra Noregs segir að krónprinsessa landsins hafi sýnt dómgreindarbrest með samskiptum við Jeffrey Epstein. Þau voru meiri en áður var talið og áttu sér stað eftir að hann hafði játað kynferðisbrot.
Allir flokkar á þingi styðja ályktun um nýja öryggis- og varnarstefnu eftir að varnarsamstarf við Evrópusambandið var tekið út.
Hornfirðingar vilja varanlegar lausnir, sandfangara og varnargarða, til að koma í veg fyrir að sandur hlaðist fyrir innsiglinguna. Breskt dæluskip heldur leiðinni opinni næstu þrjú sumur.
Bankarnir gera ekki ráð fyrir lækkun stýrivaxta á miðvikudag. Greinendur Landsbankans telja vexti eiga eftir að hækka.
Heilsu- og hvatningarverkefnið Lífshlaupið var ræst í nítjánda sinn í morgun. Forseti ÍSÍ segir mikilvægt að viðhalda heilbrigðum lífsstíl.
Tónlistarkonan Laufey hlaut sín önnur Grammy-verðlaun í gærkvöld fyrir plötuna A Matter of Time. Bad Bunny skráði sig í sögubækur verðlaunahátíðarinnar þegar hann hlaut verðlaun fyrir plötu ársins. Margir verðlaunahafar gagnrýndu ICE, innflytjendastofnun Bandaríkjanna.
Janúar var fyrsti heili mánuðurinn í nær átta ár þar sem enginn var skotinn til bana í Svíþjóð.
Frjálsíþróttakonan Eir Chang Hlésdóttir bætti í gær eigið Íslandsmet í 200 metra hlaupi innanhúss - á Norðurlandamótinu í Karlstad í Svíþjóð.