Hópur meintra þolenda í stóra mansalsmálinu gæti verið í verri stöðu eftir afskipti lögreglu og Alþýðusambandsins af málinu, segir starfsmaður ASÍ.
Rússlandsher gerði árásir á orkuinnviði í fimm héruðum Úkraínu í nótt. Þúsundir eru án rafmagns.
Skógrækt til kolefnisbindingar getur gert illa verra og stuðlað að loftslagshlýnun að því er fram kemur í nýrri vísindagrein í Nature. Prófessor í grasafræði segir að endurskoða þurfi alvarlega skipulega skógrækt hérlendis.
Forsætisráðherra var spurður um kaup Landsbankans á TM í fyrsta fyrirspurnatíma nýrrar ríkisstjórnar. Þingmaður Flokks fólksins vill að kaupunum verði rift. Meira en þrjátíu þúsund hafa sett nafn sitt á undirskriftalista gegn Bjarna Benediktssyni sem forsætisráðherra.
Landsvirkjun þarf að skerða afhendingu raforku til viðskiptavina sinna lengur fram á vorið en búist var við. Skerðingin nemur um tíu prósentum fyrir framleiðslu fyrirtækja.
Vonast er til að heitt vatn verði komið aftur á í Grafarvogi um fimmleytið, eftir að gat kom á heitavatnslögn í morgun.
Fyrsta kíghóstatilfelli í fimm ár greindist á höfuðborgarsvæðinu í síðustu viku. Sóttvarnalæknir segir smitum hafa fjölgað eftir heimsfaraldurinn. Bólusetning barna sé aðalvörnin gegn sjúkdómnum.
Biskupskjör hófst á hádegi. Þrjú eru í kjöri. Úrslit verða ljós á þriðjudaginn.
Íslensk tónlistarkona sem fékk mikla dreifingu á lagi á Tiktok er meðal þeirra fjölmörgu sem urðu fyrir því að Universal music fjarlægði tónlist þeirra af miðlinum. Hún segist ekki skilja hvers vegna deilur risanna tveggja þurfi að bitna á sjálfstæðum tónlistarmönnum.
Anna Kristín Jónsdóttir segir hádegisfréttir.