Lagt er til að ákvæðum stjórnarskrárinnar um umhverfi og auðlindir, eftirlitshlutverk dómstóla og alþingiskosningar verði breytt. Þetta er liður í heildarenduskoðun stjórnarskárinnar, verði tillögurnar samþykktar geta frambjóðendur kært ákvörðun Alþingis um gildi kosninga til Hæstaréttar.
Fimmtán langreyðar hafa veiðst frá því að hvalveiðar hófust í síðustu viku. Ekki liggur fyrir hvenær Hvalur átta heldur til veiða á ný. Matvælastofnun stöðvaði veiðar skipsins í gær.
Fyrrverandi forseti spænska knattspyrnusambandsins, kom fyrir dómara í Madríd í morgun, en hann sakaður um kynferðisbrot og kúgun. Hann neitar að hafa brotið af sér í fagnaðarlátunum eftir HM í sumar.
Verkfalli flestra fanga á Litla-Hrauni er lokið. Formaður félags fanga býst við að starfsemi fangelsisins verði með eðlilegum hætti eftir helgi.
Forsætisráðherra Japans hefur ítrekað boð sitt um fund með leiðtoga Norður-Kóreu. Sá síðarnefndi er enn í Rússlandi en óttast er að hann ætli að selja Rússum vopn.
Sjö sinnum fleiri gular veðurviðvaranir voru gefnar út í fyrrasumar en síðasta sumar.
Hálf öld er í dag síðan Karl Gústaf Svíakonungur tók við embætti og því eru hátíðahöld í landinu í dag og á morgun.
Valur mætir austurrísku meisturunum St. Pölten Frauen í umspili meistaradeildar kvenna í fótbolta, en dregið var í morgun. Sigurvegarinn kemst í riðlakeppnina.