Niðurstöður PISA-könnunarinnar 2025 sýna verri árangur íslenskra grunnskólabarna en nokkur fyrri PISA-mæling. Færri nemendur en áður búa yfir grunnhæfni í stærðfræði og lesskilningi, og færri sýna afburðahæfni.
Mynd Bandaríkjaforseta af Íslandi og nágrannaríkjum þöktum bandarískum fána er móðgun og það er hvorki fyndið né eðlilegt að gera grín að fullveldi ríkja segir forsætisráðherra. Utanríkisráðherra tekur í sama streng.
Alþingi kemur saman á ný í dag. Bann við mánaðarlegri vísitölutengingu húsaleigu, aldurstakmark á samfélagsmiðla og bókun 35 eru á meðal mála sem lögð verða fram.
Árásir Rússa á Kyiv hófust að nýju í nótt, eftir hlé vegna funda fulltrúa Bandaríkjastjórnar í Moskvu og Kyiv. Stefnt er á að fulltrúar allra þriggja ríkja hittist síðar í mánuðinum.
Aðalmeðferð í Höfðatorgsmálinu er í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Þremur mönnum er gefið að sök að hafa gert tilraun til manndráps í bílakjallaranum við Höfðatorg 17. mars.