Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 22. mars 2025

Ráðherraskipti fara fram á Bessastöðum eftir hádegi á morgun. Ólafur Þ. Harðarson segir mál Ásthildar Lóu Þórsdóttur hafa verið mjög óþægilegt fyrir ríkisstjórnina en það hafi engin áhrif á stjórnarsamstarfið og ríkisstjórnina til lengri tíma.

Þrettán voru handteknir í þremur aðgerðum lögreglu í nótt sem allar tengjast hópslagsmálum í miðbæ Reykjavíkur. Fangaklefarnir á Hverfisgötu fylltust og flytja þurfti suma þeirra handteknu á Suðurnesin og Akranes til koma þeim í klefa.

Meira en hálf milljón missir dvalarleyfi í Bandaríkjunum eftir ríkisstjórn Donalds Trump ákvað fella úr gildi áætlun sem Joe Biden setti af stað fyrir þremur árum.

Netumbo Nandi-Ndaitwah (Nandí in deitva), áður varaforseti, tók við embætti forseta Namibíu í gær. Hún vann forsetakosningar landsins í fyrra fyrir SWAPO-flokkinn, sem hefur stýrt Namibíu síðan landið hlaut sjálfstæði.

Starfsfólk Barna- og fjölskyldustofa athugar hvort það sæmræmist brunavörnum setja festingar á glugga á meðferðardeild þess á Vogi. Fjórtán sinnum hefur þurft leita börnum sem struku þaðan síðan deildin opnaði fyrir mánuði síðan.

Endurskilgreina þarf lagaákvæðu um brot í nánu sambandi. Framkvæmdastjóri Mannréttindaskrifstofu Íslands segir ákvæðið of þröngt og uppfylli ekki skilyrði

Raflínur sem liggja til Þórshafnar við Langanes eru komnar þolmörkum og eftir frystigeymsla Ísfélegsins verður tekinn í notkun segja ekkert svigrúm eftir til uppbyggingar eða orkuskipta. Fulltrúar RARIK og Landsnets hittu þingmenn og ráðherra fyrir helgi og ræddu lausnir. Líklegast er RARIK leggi nýja streng sem gæti komist í gagnið eftir þrjú ár.

Úrslitin ráðast í bikarkeppni kvenna og karla í körfubolta í Smáranum í dag. Kvennalið Njarðvíkur og Grindavíkur mætast í kvennaflokki og karlamegin verður Reykjavíkurslagur milli KR og Vals.

Frumflutt

22. mars 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Hádegisfréttir

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,