Sjúkratryggingar Íslands ná ekki að sinna lögbundnu hlutverki sínu nema að hluta. Þetta kemur fram í nýrri úttekt Ríkisendurskoðunar. Bæta þurfi innkaupaferla og efla eftirlit með kostnaði.
Fjörutíu og einn hið minnsta hefur verið drepinn á Gaza í dag, þar af 14 sem voru að sækja sér neyðaraðstoð. Ísraelsher segir athyglinni beint aftur að Gaza eftir að vopnahlé náðist við Íran.
Átök halda áfram á Alþingi um veiðigjaldsfrumvarp ríkisstjórnarinnar, sjöunda daginn. Hörð gagnrýni starfandi forsætisráðherra á stjórnarandstöðuna hleypti þingstörfum í uppnám í morgun og hnútur ganga á víxl.
Innlendar afurðastöðvar fengu sextíu prósent af innflutningskvóta fyrir nauta-, svína- og alifuglakjöt í nýlegu útboði. Framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda segir þetta undarlegt, því kvótinn hafi verið settur á til að auka samkeppni.
Ný borhola hjá hitaveitu Blönduóss og Skagafjarðar er talin geta þrefaldað afköst veitunnar. Fimm ára leit að heitu vatni fyrir hitaveituna er því lokið.