Atvinnuhús á Ísafirði og sveitarbær í Siglufirði hafa verið rýmd vegna snjóflóðahættu. Hættustig er gildi á Ísafirði og óvissustig á norðanverðum Vestfjörðum og Norðurlandi. Búist er við norðanhríð norðvestantil á landinu í dag.
Björgunarsveitir á Vestfjörðum og í Reykjavík sinntum mörgum útköllum í nótt vegna ökumanna sem höfðu lent í vandræðum vegna færðar og fest bíla.
Prófessor í sögu Mið-Austurlanda segir að stríðið í heimshlutanum muni stigmagnast enn frekar. Undir það séu Íranar sannarlega búnir.
Tónleikahaldari segist sjaldan hafa upplifað aðra eins stemningu eins og á tónleikum Laufeyjar í Kórnum í gærkvöld. Vel gekk að flytja tónleikagesti með strætó. Seinni tónleikar Laufeyjar verða í kvöld.
SR varð í gærkvöldi Íslandsmeistari karla í íshokkí í sjötta sinn. Liðið lagði SA í Skautahöllinni í Laugardal með þremur mörkum gegn tveimur í þriðja úrslitaleik liðanna um titilinn.