Þrettán klukkutíma þingfundi á Alþingi lauk rétt fyrir miðnætti í gærkvöld og nýr fundur hófst í morgun. Fimm frumvörp urðu að lögum í gær en forseti Alþingi tók starfsáætlun þingsins úr sambandi í gær.
Kona á fertugsaldri lést í Brúará í Bláskógabyggð í gær. Hún var erlendur ferðamaður. Lögreglan á Suðurlandi segir rannsókn á tildrögum slyssins miða vel. Sveitarstjóri segir að úrbóta sé þörf á svæðinu.
Hagsmunamál Íslands gagnvart Evrópusambandinu eru útlistuð í nýjum forgangslista. Þar segir að skortur á sérfræðingum innan stjórnsýslunnar kalli á stífa áherslu á mál þar sem Íslandi hafi sérstakra hagsmuna að gæta.
Maður frá El Salvador, sem Bandaríkjastjórn viðurkenndi að hafi verið sendur úr landi fyrir mistök, er kominn aftur til Bandaríkjanna. Þar verður réttað yfir honum – eitthvað sem lögmaður hans segir að sé fáránlegt.
Hljómsveitin Clubdub mun ekki koma fram á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum. Formaður Þjóðhátíðarnefndar segir forsendur hafa brostið þegar annar liðsmaðurinn sagði skilið við sveitina í vikunni.
Rannsóknir benda til þess að þyngdarstjórnunarlyf virki gegn fíknisjúkdómum. Yfirlæknir á Vogi segir langt í að þau verði viðurkennd meðferðarlyf.
Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari karlalandsliðs Íslands í fótbolta stýrði landsliðinu til sigurs í fyrsta sinn, þegar Ísland vann Skota í vináttuleik ytra í gærkvöld.