Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 2. febrúar 2025

Engin lausn er í sjónmáli í kjaradeilu kennara og verkföll í tuttugu og einum leik- og grunnskóla hefjast óbreyttu á morgun. Foreldrar eru í óða önn gera ráðstafanir, komi til verkfalla.

Utanríkisráðherra Noregs hefur áhyggjur af áhrifum viðskiptastríðs á efnahag landsins og á EFTA-ríkin. Stjórnvöld í Kanada, Mexíkó og Kína ætla bregðast við tollahækkunum Bandaríkjanna.

Setja þarf mikinn kraft í þróa RNA-bóluefni gegn fuglainflúensu mati sérfræðings í ónæmisfræði. Menn hafi smitast en ekki sín á milli enn sem komið er.

Sprengjum var varpað á heimavistarskóla í Kursk-héraði í Rússlandi í gærkvöld þar sem tugir almennra borgara höfðu leitað skjóls. Ásakanir ganga á víxl milli stjórnvalda í Rússlandi og Úkraínu um það hver hafi gert árásina.

Leit heitu vatni fyrir Djúpavog er hafin nýju eftir borun vinnsluholu skilaði litlu í fyrra. verða boraðar tvær rannsóknarholur til miða út mögulega heitavatnsæð og stefnt á hitta á æðina með vinnsluholu í sumar.

arfgerð sem verndar fyrir riðuveiki í sauðfé fæst ekki viðurkennd, eins og bændur höfðu vonast eftir. Ræktun gegn riðu gengur þó vonum framar.

Lambgimbur sem kom í heiminn á Rangárvöllum fyrir helgi er líklega fyrsta lamb ársins. Þessi vorboði er mjög snemma á ferðinni og bóndinn á bænum vonar það séu ekki fleiri á leiðinni.

Frumflutt

2. feb. 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Hádegisfréttir

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,