Bandaríkjaforseti segist ekki verða að hugsa aðeins um frið, því hann fékk ekki friðarverðlaun Nóbels. Forsetinn hvikar hvergi frá áformum um innlimun Grænlands og háa tolla á ríki sem andmæla þeim fyrirætlunum.
Leiðtogar Evrópusambandsríkjanna koma saman á aukafundi á fimmtudagskvöld vegna deilu við Bandaríkjamenn um Grænland.
Mun fleiri eru óánægðir en ánægðir með að innviðaráðherra fresti Fjarðarheiðargöngum. Ráðherra mælir fyrir samgönguáætlun á Alþingi í dag.
39 létust og fimmtíu eru enn á sjúkrahúsi eftir mannskætt lestarslys á Spáni í gærkvöld. Tvær lestir með nær 500 um borð rákust saman.
Loðnuveiðar hófust austur af landinu í nótt. Lítill kvóti hefur verið gefinn út en leitarleiðangur fimm skipa er að hefjast.
Ekki er hægt að útvista störfum talmeinafræðinga án þess að það hafi áhrif á þjónustu, segir stjórn Félags talmeinafræðinga. Báðum talmeinafræðingunum á Reykjalundi var sagt upp í síðustu viku.
Lífshættuleg fölsuð lyf hafa verið í dreifingu á Íslandi. Réttarefnafræðingur segir mikilvægt að vera á varðbergi gagnvart sérstaklega hættulegu efni sem komið gæti til landsins.
50.000 tonna magnesíumverksmiðja gæti risið á Grundartanga í Hvalfirði ef áform Njarðar Holding ná fram að ganga. Þar á að vinna magnesíum úr sjó með nýrri aðferð.
Íslenska karlalandsliðið er komið áfram í milliriðlakeppni Evrópumótsins í handbolta. Alfreð Gíslason og liðsmenn hans í þýska landsliðinu eru hins vegar í slæmri stöðu.