Hafrannsóknastofnun leggur til að dregið verði úr þorskveiðum á næsta fiskveiðiári. Gert er ráð fyrir að viðmiðunarstofninn minnki á næstu árum.
Virði hlutabréfa í Tesla hefur hríðfallið vegna átaka Elons Musks og Donalds Trumps Bandaríkjaforseta. Ráðgafar forseta reyna að stilla til friðar.
Óvissustigi almannavarna vegna norðanáhlaups í vikunni hefur verið aflétt. Veðurstofan varar áfram við skriðuhættu en sérfræðingur á ofanflóðavakt segir að mesta hættan sé liðin hjá.
Þingmenn Miðflokksins boða langa umræðu um bókun 35. Hún verður rædd á Alþingi í dag. Samkvæmt starfsáætlun á að fresta þingi eftir viku.
Foreldrar leikskólabarna í Kópavogi gagnrýna að bæjarfélagið hafi hækkað leikskólagjöld, í annað sinn á árinu. Leikskólagjöld í Kópavogi eru þau hæstu á landinu. Bæjarfulltrúi segir að ekki standi til að lækka þau.
Umsóknir um alþjóðlega vernd það sem af er ári eru rúmlega helmingi færri en á sama tímabili í fyrra. Útlendingastofnun gerir ekki ráð fyrir sömu þróun út árið.
Ísland mætir Norður-Írlandi í keppni um sæti í A-deild í Þjóðadeild kvenna í fótbolta. Þorsteinn Halldórsson, þjálfari liðsins er bjartsýnn en segir að liðið sé með hugann við annað þessa stundina