Farþegaflugvél hrapaði skömmu eftir flugtak á Indlandi í morgun. Allir 244 sem voru um borð eru taldir af. Vélin skall á íbúðahverfi.
Framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í veitingarekstri segist hvorki þekkja haus né sporð á stéttarfélaginu Virðingu. Samkeppniseftirlitið sektar samtökin um milljón á dag fyrir að neita að afhenda gögn um félagið.
Lögreglan á Suðurnesjum hefur í ár lagt hald á meira magn af kókaíni en allt síðasta ár. Tveir voru nýverið handteknir á Keflavíkurflugvelli eftir að hafa reynt að smygla tólf kílóum af kókaíni til landsins.
Neytendasamtökin telja bílastæðafyrirtæki hafa framið víðtæk brot við innheimtu á svokölluðum vangreiðslugjöldum. Þau telja að álagningin sé dulbúin innheimta.
Árlegur fundur valdhafa í stjórnmálum, svokallaður Bilderberg-fundur, hófst í Stokkhólmi í dag. Yfir 100 manns eru á fundinum sem mikil leynd er yfir.
Spáð er að ársverðbólga hækki lítillega út þetta ár. Líkur á frekari vaxtalækkunum fara því þverrandi.
Vörumerki Sýnar voru sameinuð undir einu nafni í dag . Forstjórinn segir að skapa eigi samræmt vörumerki.