Verðbólga mælist fimm komma fjögur prósent og hefur ekki verið minni frá 2021. Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins, telur einboðið að stýrivextir verði lækkaðir.
Fjármálaráðherra segir fullkomlega óábyrgt að velta fyrir sér kosningum á næstu mánuðum þegar vænta megi árangurs í baráttunni við verðbólgu.
Þrjátíu þúsund hafa flúið til Sýrlands frá Líbanon síðustu þrjá sólarhringa. Vonir um vopnahlé milli Ísraela og Hezbollah hafa dvínað.
Allt að 150 laxaseiði fóru í sjóinn þegar óhapp varð við dælingu í landeldisstöð við Ísafjarðardjúp. Matvælastofnun segir tilfellin óvenju mörg í ár.
Þingflokksformaður Pírata vill að komið verði á sjálfstæðu eftirliti með störfum lögreglu og að aðgerðir lögreglu í svokölluðu byrlunarmáli verði rannsakaðar ofan í kjölinn.
Verja þarf höfnina í Grindavík áður en vetur gengur í garð. Hún hefur sigið í jarðhræringunum.
45 prósent aðspurðra segjast ánægð með störf Höllu Tómasdóttur forseta Íslands í fyrstu könnun á störfum hennar.
Snjóað hefur til fjalla norðaustanlands í dag og vetrarfærð er á fjallvegum. Ökumenn á nöglum verða ekki sektaðir norðan heiða.