
Hádegisfréttir
Útvarpsfréttir.
Grískur karlmaður, sem er ákærður fyrir að verða manni að bana í heimahúsi á Kársnesi í Kópavogi í fyrra, neitaði sök við upphaf aðalmeðferðar í morgun.
Verðbólga mælist 5,9 prósent og hefur ekki verið meiri síðan í ágúst 2024. Fjármálaráðherra sér fram á lækkun með haustinu.
Íslenskt heilbrigðisstarfsfólk heimsækir reglulega þorp fyrir fólk með heilabilun í Hollandi. Ráðgjafi þar segist heyra frá íslensku gestunum að regluverk standi í vegi fyrir að sambærilegu þorpi sé komið á fót hér á landi.
Atvinnuvegaráðherra boðar frumvarp um hafeldi og þörungarækt í vetur og segir ágreining innan sjávarútvegsins meðal þess sem stóð í vegi fyrir afgreiðslu frumvarps um lagareldi á síðasta þingári.
Það liggur á að byrja að byggja Þjóðarhöll, segir formaður borgarráðs, svo hún verði tilbúin fyrir HM í handbolta 2031. Borgarráð undirritaði í dag verksamning um bygginguna Þjóðarhallar.
Framkvæmdastjóri Fimleikafélagsins Bjarkar segir að félagið fái minna fyrir hvern iðkanda en önnur íþróttafélög Hafnarfjarðar. Öllum þjálfurum Bjarkar var sagt upp í gær.
Saksóknarar í New York hafa ákveðið að rannsaka að nýju tveggja ára gamalt mál þar sem sjö nemendur við Cornell-háskóla eru sakaðir um hópnauðgun.
Nýjasta útgáfa GPT, gervigreindarlíkans tæknirisans OpenAI, kemur ekki út á næstunni. Fyrirtækið segir hana ekki hafa staðist öryggisprófanir.

Útvarpsfréttir.