Fjögur ár eru í dag síðan Rússar réðust inn í Úkraínu. Víglínan hefur lítið færst til síðustu ár en mannfall hefur aukist. Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra er meðal þjóðarleiðtoga í Kyiv.
Engin ákvörðun hefur verið tekin um hvort fyrrverandi læknir á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja verði ákærður fyrir að hafa valdið sjúklingum ótímabærum dauða. Málið hefur verið þrjú ár hjá héraðssaksóknara.
Öflugri leigumarkaður og styrking hlutdeildarlána er efst á blaði viljayfirlýsingar um húsnæðisuppbyggingu á landsbyggðinni sem félags- og húsnæðismálaráðherra undirritaði í morgun.
Leikskólabörn sneru aftur á Grandaborg í Reykjavík í morgun - nærri fjórum árum eftir að skólanum var lokað vegna myglu.
Skipulagsstofnun segir fyrirhugaða vindaflsvirkjun á Laxárdalsheiði geta haft verulega neikvæð umhverfisáhrif og efast um hvort réttlætanlegt sé að veita henni leyfi.
Norska liðið Bodö/Glimt getur í kvöld tryggt sér sæti í 16-liða úrslitum Meistaradeildar karla í fótbolta í fyrsta sinn. Prófessor í íþrótta- og heilsufræði segir árangur Norðmanna í íþróttum enga tilviljun.