Stýrivaxtahækkun Seðlabankans í vikunni eru forsætisráðherra vonbrigði. Hún segir að hækkanir á opinberum gjöldum hafi ekki verið meiri en undanfarin ár.
Noregur, Bretland og Kanada eru meðal ríkja sem fordæma ísraelsk stjórnvöld fyrir nýja landtökubyggð sem klýfur Vesturbakkann. Önnur landtökubyggð, sem var lokað fyrir 20 árum, hefur verið opnuð aftur.
Íslensk stjórnvöld taka undir yfirlýsingu ríkjanna og utanríkisráðherra
Vinnuveitandi brotaþola í Reykholtsmálinu segir grunsemdir strax hafa vaknað þegar maðurinn mætti ekki til vinnu. Hann hafi verið fyrirmyndarstarfsmaður.
Vopnabúr sem talið er vera á vegum rússnesku leyniþjónustunnar fannst í skógi í Þýskalandi. Leyniþjónusta landsins segir hættu á rússneskum skemmdarverkum þar í landi hafa aukist síðustu misseri.
Erlendir sérfræðingar meta hvort hægt sé að ná upp jarðneskum leifum manns sem lést í vinnuslysi í Grindavík í janúar 2024. Lögreglustjórinn á Suðurnesjum vinnur að áhættumati.
Starfsemi lögreglunnar á Þórshöfn er ekki svipur hjá sjón eftir að lögreglustöðinni var lokað vegna myglu. Byggðarráð Langanesbyggðar hefur óskað eftir fundi með lögreglustjóra um framtíð löggæslu.
Elsta mannsekja í heimi, svo vitað sé, á afmæli í dag. Enska konan, Ethel Caterham er orðin 117 ára.