Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 20. maí 2025

14 þúsund börn deyja á Gaza á næstu tveimur sólarhringum berist ekki næg hjálpargögn, mati Sameinuðu þjóðanna. Leiðtogar Bretlands, Frakklands og Kanada hóta aðgerðum ef ekkert verður gert.

Forsætisráðherra segir ríkisstjórnina alltaf vera skoða aðgerðir til setja þrýsting á Ísrael. Íslensk stjórnvöld hafi komist þeirri niðurstöðu ekki verður farið í viðskiptaþvinganir nema í samfloti með fleiri þjóðum.

Farþegaskip með um fimmtíu um borð tók niðri út af Ögri í Ísafjarðardjúpi rétt fyrir klukkan tólf. Hópslysaáæltlun var virkjuð en yfirlögregluþjónn segir enga hættu á ferðum. Farþegar verða fluttir í land og skipið dregið til hafnar.

Farþegabátur með um fimmtíu um borð er í vandræðum við Ögurnes í Ísafjarðardjúpi. Hann getur ekki siglt fyrir eigin vélarafli og óvíst hvort hann er strandaður. Hópslysaáætlun hefur verið virkjuð og björgunarskip á leið á staðinn.

Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga vill gerð verði krafa um íslenskukunnáttu þeirra sem vinna við hjúkrun. Hjúkrunarfræðingar af erlendum uppruna hafa verið sviknir um launahækkanir vegna vanþekkingar þeirra á vinnulöggjöfinni.

Þjóðvegir landsins eru lagðir með klæðingu en ekki malbiki eins og víða erlendis, og það skýrir bikblæðingar í hitanum. Malbik er mun dýrari kostur.

Aðalhagfræðingur Arion banka telur rökrétt stýrivextir verði lækkaðir á morgun. Íslandsbanki og Landsbankinn spá óbreyttum vöxtum.

Í nótt var göngubrú yfir Sæbraut í Reykjavík hífð upp í heilu lagi og henni komið fyrir á stigahúsum beggja vegna götunnar. Íbúi í Vogahverfi segir brúna bæta öryggi gangandi vegfarenda til muna.

Frumflutt

20. maí 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Hádegisfréttir

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,