Íranar hóta að svara af fullum þunga ef Bandaríkin hefja árásir að nýju. Vopnahlé rennur út á morgun og herma óstaðfestar fregnir að friðarviðræður hefjist í fyrramálið.
Hörð viðbrögð við dómi yfir manni fyrir húsbrot og kynferðislega áreitni gegn barni eru til marks um bil milli samfélagslegrar réttarvitundar og dóma segir afbrotafræðingur.
Heimsskipanin sem við þekkjum er að hrynja að mati mannréttindasamtakanna Amnesty International. Sífellt fleiri öfl takmarki mannréttindi til að ná völdum.
Einn var fluttur á sjúkrahús og annar í fangaklefa eftir umfangsmiklar lögregluaðgerðir á Akureyri í gærkvöld.
Formaður Eflingar er gagnrýnin á fyrirkomulag launa formanns VR. Framkvæmdastjóri VR segir breytingar fela í sér aukið gagnsæi.
Almenningur hefur neikvætt viðhorf til fólks sem hefur afplánað fangelsisdóma, samkvæmt nýrri rannsókn, og það hefur neikvæð áhrif á sjálfsmynd fyrrverandi fanga.
Forseti Hagsmunasamtaka knattspyrnukvenna segir að það myndi aldrei gerast að strákar gleymdust, líkt og raunin var með stelpur í myndböndum af TM-móti Stjörnunnar í fótbolta. Stelpur séu afgangsstærð í íþróttinni.
Katla Björk Ketilsdóttir keppti fyrst íslensku keppendanna á Evrópumótinu í ólympískum lyftingum í Georgíu í morgun. Fjórir Íslendingar keppa á mótinu að þessu sinni.