Að minnsta kosti þrír voru fluttir á bráðamóttöku í gærkvöld eftir tónleika FM95BLÖ í Laugardalshöll. Tónleikagestir lýsa miklum troðningi og segja fólk hafa misst meðvitund í mikilli mannmergð. Lögregla og gæsla hafi ekki ráðið við aðstæður, sem hafi verið hættulegar.
Yfir 30 manns sem voru að sækja neyðarhjálp á Gaza voru drepnir þegar Ísraelsmenn hófu skothríð á mannfjöldann. Viðræður um vopnahlé eru í óvissu.
Sjö voru drepnir og 71 særðist þegar tvær brýr voru sprengdar í Rússlandi nærri landamærunum að Úkraínu. Rússnesk stjórnvöld líta á sprengingarnar sem hryðjuverk.
Franska liðið Paris Saint Germain vann sinn fyrsta Meistaradeildartitil í fótbolta karla í gærkvöldi, með stærsta sigri í sögu keppninnar. Tveir létust og hátt í sex hundruð voru handtekin þegar stuðningsmenn fögnuðu úrslitunum.
Appelsínugular viðvaranir taka gildi vegna norðanstorms og hríðarveðurs á Norðaustur,- Suðaustur og Austurlandi aðfaranótt þriðjudags. Júníhretið byrjar hins vegar í fyrramálið fyrir norðan.
Sjómannadagurinn er haldinn hátíðlegur í dag með fjölbreyttri dagskrá um land allt. Við kíkjum um borð í varðskipiið Óðinn í fréttatímanum