Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 9. apríl 2026

Landspítalinn ætlar fækka starfsfólki sem er í lágu starfshlutfalli til mæta aðhaldskröfu stjórnvalda. Læknir í hlutastarfi sem var sagt upp í gær segir sér hafi ekki verið boðið bæta við sig.

Varautanríkisráðherra Írans segir Hormússund ekki verða opnað fyrr en árásum linni. Hann sakar Bandaríkin og Ísrael um alvarleg brot á vopnahléi með árásum á Líbanon þar sem yfir 200 féllu í gær.

Móðir barns sem á erfitt með mæta í skólann segir algengt foreldrar þurfi vera heima þar sem ekki hægt mæta þörfum barna þeirra í skólanum.

Rússneskir kafbátar voru vikum saman í breskri efnahagslögsögu, sögn varnarmálaráðherra Bretlands. Hann segir njósnakafbáta hafa verið yfir sæstrengjum og öðrum mikilvægum innviðum en ekki unnið skemmdir á þeim.

Krían er komin til landsins og er óvenju snemma á ferðinni, raunar 11 dögum á undan áætlun.

Einhvers konar veðurviðvörun var í gildi einhvers staðar á landinu flesta daga marsmánaðar, sem var úrkomu- og umhleypingasamur og kaldari um land allt en jafnaði síðustu tíu ár.

ríkisstjórn í Færeyjum vill aukna sjálfsstjórn, meðal annars sjálfstæða aðild EFTA og alþjóðlegum samningum, og gera eigin fríverslunarsamninga. Illa gengur mynda ríkisstjórn í Danmörku.

Íbúðauppbygging á landinu var meiri en þörfin sem varð til vegna mannfjölgunar á síðasta ári.

Fjallabyggð ætlar í viðræður við þyrluskíðafyrirtæki um uppbyggingu á flugvellinum á Siglufirði.

Birt

9. apríl 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,