Vaxandi þungi virðist í hernaðaraðgerðum Ísraela á Gaza ströndinni. Heilbrigðisyfirvöld á Gaza segja að minnst átta þúsund og þrjú hundruð hafi fallið síðan átökin hófust. Heilbrigðisyfirvöld á Gaza segja að minnst átta þúsund og þrjú hundruð hafi fallið síðan átökin hófust.
Formaður utanríkismálanefndar Alþingis segir ekki tvær utanríkisstefnur í gangi varðandi málefni Ísrales og Palestínu.
Utanríkisráðherra segir engan áherslumun milli stjórnarflokkanna varðandi Gaza. Forsætisráðuneytinu hafi verið tilkynnt um að Ísland myndi sitja hjá við atkvæðagreiðslu á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna.
Allt bendir til kvikusöfnunar á fjögurra kílómetra dýpi á Reykjanesskaga, norðvestan við Þorbjörn. Skjálftavirknin er viðvarandi.
Karlmaður á áttræðisaldri fékk ekki flutning með sjúkraflugvél vegna þyngdar sinnar. Framkvæmdastjóri flugfélagsins segir þetta ekki í fyrsta sinn sem fólki sé neitað um sjúkraflug af þessari ástæðu.
Riða greindist á bænum Stórhóli í Húnaþingi Vestra fyirir helgi. Óvíst er hvort skera þarf allt fé á bænum.
Verðbólga minnkar um 0,1 prósent frá síðasta mánuði og mælist nú 7,9 prósent. Formaður VR segir að það litlu breyta um komandi kjaraviðræður.
Oddviti Fjarðabyggðar telur sveitarfélagið verði að bregðast við skuldasöfnun. Skuldir jukust um meira en 2 milljónir á dag í fyrra.
Kona, sem leitaði til neyðarmóttöku Sjúkrahússins á Akureyri vegna kynferðisbrots, segir að það hafi ýft upp sárin þegar nemi í HA hafði samband við hana vegna ritgerðarsmíðar.
Pedro Sanchez, starfandi forsætisráðherra Spánar, vill veita aðskilnaðarsinnum í Katalóníu sakaruppgjöf, til að fá stuðning flokka þar við myndun meirihlutastjórnar