Sjálfstæðisflokki og Miðflokki gekk best í sveitarstjórnarkosningum í gær. Kjörnum fulltrúum Sjálfstæðisflokksins fjölgaði um 15 á landsvísu og Miðflokkurinn bætti við sig sautján fulltrúum. Kjörsókn var tæplega 67%.
Sjálfstæðismenn verða níu í borgarstjórn Reykjavíkur, Samfylkingin heldur sínum fimm en fékk minna fylgi hlutfallslega en fyrir fjórum árum.
Formaður Miðflokksins segir flokk sinn nýtt afl í sveitarstjórnum. Formaður Samfylkingarinnar er meðvituð um ákall um breytingar í borginni. Formaður Framsóknarflokksins telur einn borgarfulltrúa varnarsigur og kosninganiðurstöðurnar fóru fram úr vonum formanns Sjálfstæðisflokksins.
Ebólufaraldurinn í lýðstjórnarlýðveldinu Kongó hefur breiðst út til nágrannaríkja og fjöldi þeirra sem smitast gæti aukist verulega, segir Alþjóða heilbrigðismálastofnunin. Á þriðja hundrað manns hefur smitast og um áttatíu eru látin.