Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 3. febrúar 2026

Lögreglan á Suðurlandi hefur farið fram á gæsluvarðhald yfir tveimur konum sem handteknar voru í gær vegna andláts í Vestmannaeyjum.

Marius Høiby, sonur norsku krónprinsessunnar, neitar sök í flestum ákæruliðum. Réttarhöld yfir honum hófust í morgun.

Menn sem voru vistaðir af barnaverndarnefndum á sveitabæ segjast hafa orðið fyrir miklu ofbeldi og kerfið hafi brugðist þeim.

Fimm hafa haft samband við Reykjavíkurborg vegna vægra einkenna eftir listería greindist í framleiðslueldhúsinu á Vitatorgi. Listeríusmit hefur þó ekki verið staðfest.

Ríkisstjórn Frakklands stóð af sér tvær tillögur um vantraust í gær. Þær voru lagðar fram eftir forsætisráðherrann ákvað knýja fjárlög í gegnum þingið án atkvæðagreiðslu.

Rútubílstjóri á Egilsstöðum harðneitar borga næstum tuttugu milljónir í kílómetragjald í janúar. Útilokað rútan komist 25 hringi í kringum jörðina, það er tæplega milljón kílómetra, á einum mánuði.

Verð fyrir senda pakka til útlanda meira en tvöfaldast um næstu mánaðamót þegar verðskrá Póstsins tekur gildi.

Fram varð í gærkvöld fyrsta liðið til tryggja sér sæti í undanúrslitum bikarkeppni kvenna í handbolta með sigri á ÍR.

Frumflutt

3. feb. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,