Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 26.maí 2025

Utanríkisráðherra segir aðgerðir Ísraela á Gaza, þar sem þeir beita hungri sem vopni, vera stríðsglæp. Alþjóðasamfélagið verði gera meira en vera með yfirlýsingar. Hún sótti fund utanríkisráðherra rúmlega 20 ríkja á Spáni um helgina. Á fjórða tug voru drepin í árás Ísraelshers á skóla á Gaza í nótt.

Trump Bandaríkjaforseti ætlar fresta því setja fimmtíu prósenta toll á vörur frá Evrópusambandinu, eins og hann hótaði á föstudag. Þetta tilkynnti hann í gær, eftir símtal við Ursulu von der Leyen, forseta framkvæmdastjórnar ESB.

Þrír sjómenn hafa kært framkvæmdaleyfi fyrir lagningu sæstrengs í Arnarfirði til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Þeir segja strenginn eyðileggja bestu rækjumiðin í firðinum.

Vinstrihreyfingin grænt framboð býður fram undir eigin merkjum í Reykjavík í sveitastjórnakosningum á næsta ári, segir formaður flokksins. Ákvarðanir um blönduð framboð eða annars konar samstarf verði teknar í hverju sveitarfélagi fyrir sig.

Ísland og hin EES ríkin semja um aðgang innkaupum Evrópusambandsins á lyfjum og lækningavörum, komi til neyðarástands í heilbrigðismálum.

Frú Ragnheiður auglýsir eftir tjöldum og svefnpokum fyrir heimilislausa fíkniefnanotendur sem ekki vilja gista í neyðarskýlum.

Aron Pálmarsson, handboltamaður hefur ákveðið leggja skóna á hilluna í sumar. Landsliðþjálfari Íslands segir Aron vera besta handboltamann Íslands fyrr og síðar, ásamt Ólafi Stefánssyni.

Frumflutt

26. maí 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Hádegisfréttir

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,