Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 18. apríl 2026

Íranar hafa lokað umferð um Hormússund á ný. Bandaríkin hafa ekki aflétt herkví sinni um hafnir landsins. Vopnahlé rennur út á miðvikudag og Trump útilokar ekki hefja árásir á ný.

Íslenskum sjávarútvegi er í danska dagblaðinu Berlingske lýst sem fámennisstjórn, byggðri á græðgi og pólitískum áhrifum. Fjármálaráðherra Íslands er einn viðmælenda blaðsins.

Talsverðan mannskap þurfti til koma slösuðum manni til bjargar við Þingvallarvatn í gær. Maðurinn féll í Davíðsgjá og slasaðist talsvert á fæti.

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna komandi sveitarstjórnarkosninga hófst í gær á 28 stöðum víðs vegar um landið, í sendiráðum og hjá ræðismönnum erlendis.

Íbúum Evrópusambandsríkjanna fækkar um 53 milljónir fyrir aldamót, samkvæmt nýrri mannfjöldaspá Eurostat, en þeir eru í dag rétt tæpar 400 milljónir.

Ákveðið hefur verið rífa Beitingarhöllina á Þórshöfn, eftir mikið foktjón fyrr í mánuðinum.

Tónleikum Kanye West sem halda átti í Póllandi í júní hefur verið aflýst. Bresk stjórnvöld höfðu áður bannað West koma til landsins.

Birt

18. apríl 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,