Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 4.júní 2025

Þrjú eru ákærð fyrir hafa orðið manni bana í Gufunesi í mars. Karlmaður á fertugsaldri og fjögur ungmenni eru ákærð fyrir manndráp, fjárkúgun og frelsissviptingu.

Engin neyðaraðstoð verður veitt á Gaza í dag. Ísraelsher hefur ítrekað gert árásir á fólk í leit aðstoð.

Tilkynningar um alvarlegt eða endurtekið heimilisofbeldi voru tvöfalt fleiri á fyrsta ársfjórðungi en á sama tíma í fyrra. Börn eru oftar skráð í heimilisofbeldismálum, bæði sem þolendur og gerendur.

Áfram rignir norðanlands fram helgi og skriðuviðvörun er enn í gildi á Norður- og Austurlandi. Tilkynnt var um tvær minni háttar skriður síðasta sólarhringinn.

Kostnaður krabbameinssjúklinga á landsbyggðinni vegna dvalar á sjúkrahóteli á höfuðborgarsvæðinu getur numið hundruðum þúsunda króna. Krabbameinsfélagið vill þak á þennan kostnað.

Mælt er með því fólk eigi reiðufé til þriggja daga. Þetta segir varaseðlabankastjóri sem kynnti í dag skýrslu um hvernig mætti draga úr áhrifum rafmagns- og netleysis á greiðsluflæði.

Ríkisstjórnin vonast til koma ákveðnum málum í gegn áður er þingi er frestað. Forsætisráðherra segir það skýrist fljótlega hvað náist og hvað ekki.

Ísland gæti mætt Norður-Írlandi, Finnlandi, Írlandi eða Tékklandi í umspili til halda sæti í A-deild Þjóðadeildar kvenna í knattspyrnu. Dregið verður 6. júní.

Frumflutt

4. júní 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Hádegisfréttir

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,