Atvinnuvegaráðherra segir að nýtt frumvarp um strandveiðar tryggi gagnsæi og sjálfbærni. Það hafa staðið lengi til að tryggja 48 daga strandveiðar. Hún skilur áhyggjur Hafrannsóknarstofnunar enda sé verið að víkja frá þeirra ráðgjöf.
Bandaríkjaforseti ætlar að hækka innflutningstolla á áli og stáli úr 25% í 50%. Hann segir þetta gert til að styrkja enn frekar stöðu bandarísks iðnaðar.
Íslensk hótel eru hvött til þess að taka þátt í hópmálsókn á hendur einu stærsta bókunarkerfi heims, Booking.com. Fyrirtækið misnotaði markaðsráðandi stöðu sína á um tuttugu ára tímabili, kom í veg fyrir verðsamkeppni og olli hótelum verulegu fjárhagslegu tjóni.
Varnarmálaráðherra Bandaríkjanna segir Kínverja undirbúa hernaðaraðgerðir til að raska valdajafnvæginu í álfunni. Kína ætli sér að ráða yfir stærri hluta Asíu en æskilegt sé.
Hoppukastalar, koddaslagur og sjóstakksund er meðal þess sem er í boði í Vestmannaeyjum í dag í tilefni sjómannadagshelgarinnar. Sjómenn verða heiðraðir um allt land á morgun.
Eftir jafntefli við Noreg í gærkvöld þarf íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu á sigri að halda gegn Frökkum á Laugardalsvelli á þriðjudag.