Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 12. apríl 2026

Flugstjóri flugvélar Icelandair sem flaug lágflug yfir Vestmannaeyjum í gær fékk leyfi til breyta út frá flugleið frá flugumsjón, en ekki frá Icelandair. Farþegar voru látnir vita til stæði fljúga lágt, einn þeirra segir þetta hafa verið stórkostlega upplifun.

Auknar líkur eru á vopnahlé milli Írans og Bandaríkjanna haldi ekki, eftir friðarviðræður runnu út í sandinn í gær. Svo virðist sem samkomulag hafi aldrei verið í augsýn.

Kjörsókn í þingkosningunum í Ungverjalandi hefur verið afar góð það sem af er degi. Sjö tímum eftir kjörstaðir voru opnaðir, hafði rúmur helmingur kjósenda greitt atkvæði.

Ísland er fjarlægjast alþjóðleg markmið um þróunaraðstoð á sama tíma og stór ríki draga saman seglin, segir framkvæmdastjóri Barnaheilla. Hún segir Ísland ætti taka afstöðu og sýna fordæmi í þessum efnum.

Sjálfkjörið verður í minnst fjórum sveitarfélögum í kosningunum í vor þar sem einungis einn framboðslisti hefur komið fram.

og Ísland mætir Portúgal í lokaleik undankeppni Evrópumóts kvenna í handbolta á Ásvöllum síðar í dag. Sigur kemur íslenska liðinu upp fyrir það portúgalska og á EM.

Birt

12. apríl 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,