Stýrivextir voru hækkaðir um 0,25 prósentustig í morgun og eru því átta prósent. Peningastefnunefnd segir verðbólguvæntingar enn of háar og undirliggjandi verðbólgu of mikla. Seðlabankastjóri er þó bjartsýnn að úr rætist.
Verktaki segir að hækkunin komi illa við byggingariðnaðinn. Vaxtagreiðslur fyrirtækis hans hækki um 100 milljónir króna á ári.
Fyrrverandi varnarmálaráðherra Úkraínu vill að Úkraínumenn gangi til forsetakosninga. Þetta er talin alvarlegasta atlagan að Volodymyr Zelensky sem forseta, frá upphafi allsherjarinnrásar Rússa.
Þriðjungi færri hefja nám í lögreglufræði í ár en í fyrra. Aðalskýringin er fjárskortur.
Einn sakborninga játaði sök á þriðja degi aðalmeðferðar í Reykholtsmálinu í dag. Búist er við að réttarhöldin haldi áfram inn í næstu viku.
Ráðamenn í Frakklandi og Þýskalandi fordæma ummæli þjóðaröryggisráðherra Ísraels, um að taka ætti fólk markvisst af lífi á Gaza, með loftárásum.
Eftirlitsmaður Náttúruverndarstofnunar uppgötvaði ólöglegar hreindýraveiðar í kjölfar ábendingar í síðustu viku. Rannsókn málsins er langt komin hjá lögreglunni á Austurlandi.