Aðalmeðferð í Reykholtsmálinu hélt áfram í Héraðsdómi Suðurlands í morgun. Fleiri sakborningar gefa skýrslu fyrir dómi í þessu máli þar sem hópur fólks misþyrmdi manni, kúgaði af honum fé og sendi úr landi.
Sameiginleg varnaræfing Bandaríkjanna og Íslands, Norður-Víkingur, var sett á Keflavíkurflugvelli í morgun.
Samtök hernaðarandstæðinga telja að vera herliðs á Íslandi snúist ekki um varnir þess, heldur Bandaríkjanna. Ísland eigi á hættu að dragast inn í hernaðarátök.
Yfir fjögur hundruð íbúar í Fjallabyggð krefjast úrbóta vegna langvarandi vatnsleka í Héðinsfjarðargöngum. Vegagerðin boðar viðgerðir í haust.
Réttarhöld byrja í dag í máli meira en helmings ríkja í Bandaríkjunum gegn Meta, móðurfyrirtæki Instagram og Facebook, sem er sakað um að hanna vísvitandi ávanabindandi miðla sem lokki að ungt fólk og valdi því skaða.
Frá mánaðamótum geta gestir ekki borðað hádegismat á Vitatorgi um helgar. Skrifstofustjóri hjá borginni segir lokun eldhússins á Vitatorgi meginástæðu breytinganna.
Pysjurnar eru farnar á flug í Vestmannaeyjum en sumar þeirra blindast af götuljósum og komast ekki alla leið út á sjó. Á lundaspítala er hlúð að þeim áður en þeim er sleppt aftur út á sjó.
Kvenfélag Grímsness stendur fyrir árlegri tombólu á Borg í hundraðasta sinn um helgina. Þar verða engin núll.
Evrópumót í áhaldafimleikum hefst á morgun. Íslenska sveitin er staðráðin í að komast í úrslit.