Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 18. ágúst 2026

Aðalmeðferð í Reykholtsmálinu hélt áfram í Héraðsdómi Suðurlands í morgun. Fleiri sakborningar gefa skýrslu fyrir dómi í þessu máli þar sem hópur fólks misþyrmdi manni, kúgaði af honum og sendi úr landi.

Sameiginleg varnaræfing Bandaríkjanna og Íslands, Norður-Víkingur, var sett á Keflavíkurflugvelli í morgun.

Samtök hernaðarandstæðinga telja vera herliðs á Íslandi snúist ekki um varnir þess, heldur Bandaríkjanna. Ísland eigi á hættu dragast inn í hernaðarátök.

Yfir fjögur hundruð íbúar í Fjallabyggð krefjast úrbóta vegna langvarandi vatnsleka í Héðinsfjarðargöngum. Vegagerðin boðar viðgerðir í haust.

Réttarhöld byrja í dag í máli meira en helmings ríkja í Bandaríkjunum gegn Meta, móðurfyrirtæki Instagram og Facebook, sem er sakað um hanna vísvitandi ávanabindandi miðla sem lokki ungt fólk og valdi því skaða.

Frá mánaðamótum geta gestir ekki borðað hádegismat á Vitatorgi um helgar. Skrifstofustjóri hjá borginni segir lokun eldhússins á Vitatorgi meginástæðu breytinganna.

Pysjurnar eru farnar á flug í Vestmannaeyjum en sumar þeirra blindast af götuljósum og komast ekki alla leið út á sjó. Á lundaspítala er hlúð þeim áður en þeim er sleppt aftur út á sjó.

Kvenfélag Grímsness stendur fyrir árlegri tombólu á Borg í hundraðasta sinn um helgina. Þar verða engin núll.

Evrópumót í áhaldafimleikum hefst á morgun. Íslenska sveitin er staðráðin í komast í úrslit.

Birt

18. ágúst 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,