Börn yngri en eins árs hafa þurft að fara í öndunarvél vegna inflúensu segir barnasmitsjúkdómalæknir og börn sem lögð hafa verið inn á spítala vegna hennar eru bæði fleiri og yngri en áður.
Trump-aðdáandinn og auðkýfingurinn Andrej Babis tók aftur við stjórnartaumunum í Tékklandi í morgun, þegar hann var settur í embætti forsætisráðherra.
Landssamband lögreglumanna telur það grafa undan trausti til lögreglunnar hafi lögreglunemar deilt óviðeigandi myndum af bekkjarsystrum sínum.
Ráðherra fjölmiðla segir það sína persónulegu skoðun að Ísland eigi ekki að taka þátt í júróvisjón, það sé óheppilegt við núverandi aðstæður. Frestur til að hætta við þátttöku rennur út á morgun.
Forseti Alþingis bað þingheim afsökunar á orðum sem hún viðhafði að loknum þingfundi á föstudag.
Breyta á kosningalögum og gera Grindvíkingum kleift að kjósa í Grindavík, óháð lögheimili. Formaður Grindavíkurnefndar segir mikilvægt að allir Grindvíkingar fái að móta framtíð sveitarfélagsins.
Mun fleiri segjast fylgjandi því að klukkan á Íslandi verði færð aftur um eina klukkustund, í nýjum Þjóðarpúlsi Gallups. Stuðningurinn dvínar frá könnun fyrir rúmum áratug.
Lögreglumaður sem hefur sérhæft sig í leit að börnum í vanda segir að ástandið sé þannig að fjölskyldur sundrist og foreldrar bugist.
Úkraínuforseti ætlar að senda Hvíta húsinu svar við friðaráætlun Trumps Bandaríkjaforseta, og leggja til breytingar. Fyrri áætlanir Trumps þóttu Rússum mjög í vil.
Fótboltakonan Sandra María Jessen, sem leikur með Köln, varð í gærkvöld fyrsta íslenska konan til að skora þrennu í efstu deild í Þýskalandi.