Forstjóri HS Orku segir koma mjög á óvart að fjármálaráðherra ætli að athuga eftir á hvort fyrirtæki eigi að bera hluta af kostnaði ríkissjóðs við gerð varnargarða. Ríkið hafi sjálft ákveðið að verja Svartsengi til að varna skaða á öllum fasteignum á Reykjanesskaga.
Vegna mikilla þurrka og vatnsskorts gæti þurft að flytja alla íbúa Teherans höfuðborgar Írans á brott. Eftir mestu þurrka í áratugi eru vatnsból borgarinnar að tæmast.
Jarðskjálfti af stærðinni 3,5 varð í Öskju í morgun. Jarðskjálftar af þessari stærð eru ekki mjög algengir þar.
Þúsundum flugferða hefur verið aflýst í Bandaríkjunum vegna lokunar alríkisstofnana. Flugmálayfirvöld vestra segja erfitt að manna flugturna á minnst 40 flugvöllum.
Umferðin á höfðborgarsvæðinu eykst um fimm prósent á ári og nauðsynlegt er að dreifa henni segir sérfræðingur hjá Vegagerðinni. Rannsóknir sýni að ferðatíminn lengist jafnt og þétt.
Verslanir eru í startholunum vegna dags einhleypra og sumar hafa þjófstartað tilboðunum. Landvernd hvetur fólk til að hugsa áður en það verslar á afsláttardögum.
Sæðisbanki í Danmörku útilokar sæðisgjafa með lága greindarvísitölu. Dósent í siðfræði segir varasamt að tengja háa greindarvísitölu við lífsgæði ófæddra barna.
Snævar Örn Kristmannsson úr Breiðabliki setti í dag heimsmet í fötlunarflokki í 50 metra flugsundi.